Fotbolti.net
13.01.24 - 12:00
Aksentije Milisic

Burnley fær leikmann frá Chelsea á láni (Staðfest)

Burnley fær leikmann frá Chelsea á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

David Datro Fofana, sóknarmaður Chelsea á Englandi, hefur gengið til liðs við Burnley á lánssamningi. 

Fofana gekk til liðs við Chelsea frá Molde í janúar í fyrra en hann fór á láni til Union Berlin í sumar. Honum gekk illa þar og lenti hann upp á kant við þjálfara liðsins.

Hann er nú mættur til Burnley en Jóhann Berg Guðmundsson og félagar eru í mikilli fallbaráttu. Burnley missti niður unnin leik gegn Luton í gær í jafntefli undir lok leiks.

Fofana er 21 árs og á að baki þrjá landsleiki fyrir Fílabeinsströndina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.