Fotbolti.net
12.01.24 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Maatsen kominn á lán til Dortmund (Staðfest) - Framlengdi við Chelsea

Gulur og glaður.

Gulur og glaður.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Ian Maatsen er kominn til Borussia Dortmund í Þýskalandi, þar sem hann verður á láni út tímabilið.

Áður en Maatsen undirritaði lánssamninginn þá framlengdi hann samning sinn við Chelsea til 2026.

Þessi 21 árs leikmaður hefur komið við sögu í 15 leikjum fyrir Chelsea á tímabilinu en aðeins þrisvar í byrjunarliðinu.
Hann hefur verið í röðum Chelsea síðan hann kom frá PSV Eindhoven 2015 en leikið fyrir Charlton, Coventry og Burnley á lánssamningum.

Maatsen er annar leikmaðurinn sem Dortmund nælir í frá Englandi því Jadon Sancho er einnig á leiðinni á láni frá Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.