Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24446 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR26.07.2023, 14:30

Igor Julio til Brighton (Staðfest)

Brighton hefur keypt brasilíska miðvörðinn Igor Julio frá Fiorentina fyrir 14,5 milljónir punda. Þessi 25 ára leikmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið. Roberto de Zerbi stjóri Brighton beindi athygli sinni að Igor eftir að félagið gafst upp á að fá Levi Colwill frá Chelsea. 40 milljóna punda tilboði félagsins var hafnað en Colwill var á láni hjá Brighton á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að enda í sjötta sæti.

FRÉTTIR26.07.2023, 09:30

Castellanos til Lazio (Staðfest) - Sow næstur

<p>Lazio er búið að festa kaup á Valentín 'Taty' Castellanos, 24 ára framherja sem skoraði 14 mörk í 37 leikjum á láni hjá Girona á síðustu leiktíð.</p>

FRÉTTIR25.07.2023, 19:20

Víkingurinn Sörloth til Villarreal (Staðfest)

<p>Norski framherjinn Alexander Sörloth er búinn að semja við Villarreal sem kaupir hann af þýska félaginu RB Leipzig fyrir rétt rúmar 10 milljónir evra.</p>

FRÉTTIR25.07.2023, 17:00

Burnley fær táning frá Espanyol (Staðfest)

Nýliðar Burnley í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið til sín átján ára vængmann frá Espanyol á Spáni, Luca Koleosho. Hann lék fjóra leiki í La Liga á síðasta tímabili og skoraði eitt mark. Koleosho er U19 landsliðsmaður Ítalíu, fæddist í Bandaríkjunum og er sonur nígerísks föðurs og Ítalsk-kanadískrar móður.

FRÉTTIR25.07.2023, 15:00

Rafnar Máni klárar tímabilið hjá Völsungi (Staðfest)

Vösungur tilkynnti í morgun að Rafnar Máni Gunnarsson væri kominn heim í Völsung á láni frá Þór út tímabilið. <i>„Rafnar var í sístækkandi hlutverki hjá Völsungi síðustu þrjú tímabil og er mikill fengur fyrir okkar lið."

FRÉTTIR25.07.2023, 14:07

Breiðablik kaupir Linli Tu (Staðfest)

Breiðablik hefur fest kaup á kínverska framherjanum Linli Tu frá Keflavík og er hún á leið í grænt. Linli gekk í raðir Keflavíkur og skoraði fjögur mörk í fyrstu tólf leikjum deildarinnar.

FRÉTTIR25.07.2023, 11:21

Jóan Símun Edmundsson í KA (Staðfest)

Færeyski landsliðssóknarmaðurinn Jóan Símun Edmundsson er kominn í KA en hann hefur skrifað undir samning út yfirstandandi tímabil. Jóan Símun var einnig í viðræðum við Breiðablik sem ákvað síðan að draga sig út úr þeim, samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Jóan Símun á 32 ára afmæli á morgun og er lykilmaður í færeyska landsliðinu þar sem hann hefur leikið 79 landsleiki og gert í þeim 8 mörk.

FRÉTTIR25.07.2023, 10:16

Elanga frá Man Utd í Nottingham Forest (Staðfest)

Kantmaðurinn Anthony Elanga hefur fært sig um set; hann er búinn að yfirgefa Manchester United og hefur samið við Nottingham Forest. Kaupverðið er talið vera 15 milljónir punda.

FRÉTTIR25.07.2023, 08:20

Ismaila Sarr til Marseille (Staðfest)

Sóknarleikmaðurinn Ismaila Sarr er genginn í raðir Marseille í Frakklandi. Þessi 25 ára senegalski landsliðsmaður er keyptur frá Watford þar sem hann skoraði 34 mörk í 131 leik síðan hann kom frá Rennes í ágúst 2019.

FRÉTTIR25.07.2023, 06:00

Kærustupar í Tindastól (Staðfest)

Spænsku fóboltakonurnar, Bea Parra og Marta Perarnau, eru gengnar til liðs við Tindastól í Bestu deildinni en þetta er tilkynnt á Instagram-síðu félagsins.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.