Fotbolti.net
25.07.23 - 10:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Elanga frá Man Utd í Nottingham Forest (Staðfest)

Anthony Elanga.

Anthony Elanga.

Canon

Mynd: EPA

Kantmaðurinn Anthony Elanga hefur fært sig um set; hann er búinn að yfirgefa Manchester United og hefur samið við Nottingham Forest.

Kaupverðið er talið vera 15 milljónir punda.
„Það eru ekki til orð til að þakka ykkur nægilega mikið fyrir ykkar stuðning," segir Elanga í kveðjubréfi til stuðningsmanna Man Utd.

Elanga er 21 árs gamall Svíi sem gekk í raðir Man Utd árið 2014. Hann hefur leikið 55 leiki fyrir aðallið United og skorað fjögur mörk. Hans besti tími var undir stjórn Ralf Rangnick en í fyrra kom hann við sögu í 26 keppnisleikjum án þess að skora.

Nottingham Forest er líka að vonast til þess að fá Dean Henderson frá United, en markvörðurinn var á láni hjá Forest á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.