Klara Mist aftur í Fylki (Staðfest)

Mynd: Fylkir

Mynd: Fylkir

Stjörnukonan Klara Mist Karlsdóttir er mætt aftur til Fylkis á láni frá Stjörnunni.
Klara MIst er fædd árið 2003 og kom við sögu í tíu leikjum með Fylki á síðasta tímabili.
Hún var þá á láni frá Stjörnunni en á þessu tímabili hefur hún aðeins spilað einn leik með Garðbæingum í Bestu deildinni.
Klara, sem spilar sem bæði varnar- og miðjumaður, er nú mætt aftur í Árbæinn og mun spila með liðinu á láni út tímabilið.
Fylkisliðið er í öðru sæti Lengjudeildarinnar með 22 stig og gerir sér vonir um að komast aftur upp í deild þeirra bestu.