Villa lánar Sanson til Nice (Staðfest) - Inn fyrir Ramsey


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Franska félagið Nice er búið að krækja í miðjumanninn Morgan Sanson á lánssamningi frá Aston Villa.
Sanson er fenginn til að fylla í skarðið fyrir Aaron Ramsey sem fór frá félaginu á frjálsri sölu fyrr í sumar.
Sanson er 28 ára gamall og borgaði Villa rúmlega 15 milljónir punda til að kaupa hann fra Marseille í janúar 2021. Hann fann þó aldrei taktinn í enska boltanum og hefur í heildina komið við sögu í 23 leikjum á tveimur árum hjá félaginu.
Hann var lánaður til Strasbourg í janúar og gerði flotta hluti til að hjálpa að bjarga félaginu frá falli úr efstu deild, en núna á hann tvö ár eftir af samningi við Villa sem vill selja hann. Nice fær kaupmöguleika með leikmanninum en ekki er greint frá hversu mikið hann mun koma til með að kosta ef félagið ákveður að kaupa hann.
Nice endaði um miðja deild á síðustu leiktíð og hefur ekki verið sérlega virkt á leikmannamarkaðinum í sumar. Félagið er búið að selja Kasper Dolberg og eru Aaron Ramsey og Ross Barkley farnir frítt.
Nicolas Pépé er þá farinn frá félaginu eftir að hafa gert flotta hluti á lánssamningi hjá Arsenal, en kantmaðurinn knái á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við stórveldið frá London.


Mynd: Getty Images





