Fotbolti.net
25.07.23 - 08:20
Elvar Geir Magnússon

Ismaila Sarr til Marseille (Staðfest)

Sarr hjálpaði Senegal að vinna Afríkukeppnina á síðasta ári.

Sarr hjálpaði Senegal að vinna Afríkukeppnina á síðasta ári.

Canon

Mynd: EPA

Sóknarleikmaðurinn Ismaila Sarr er genginn í raðir Marseille í Frakklandi.

Þessi 25 ára senegalski landsliðsmaður er keyptur frá Watford þar sem hann skoraði 34 mörk í 131 leik síðan hann kom frá Rennes í ágúst 2019.
Sarr hjálpaði Senegal að vinna Afríkukeppnina á síðasta ári. Aðdáendur enska boltans þekkja hann vel en hann spilaði fyrir Watford í úrvalsdeildinni 2019-20 og 2021-22.

Hann skoraði tíu mörk í 39 leikjum á síðasta tímabili fyrir Championship-liðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.