Raúl Jiménez kominn til Fulham (Staðfest)


Mynd: Heimasíða Wolves


Mynd: Heimasíða Wolves
Fulham er búið að festa kaup á Raúl Jiménez frá Wolves á tveggja ára samningi með möguleika á auka ári.
Jimenez er 32 ára gamall framherji og er Fulham talið borga um 5,5 milljónir punda fyrir.
Hann skoraði 57 mörk í 166 leikjum með Wolves en síðustu þrjú tímabil hafa ekki verið nægilega góð hjá honum.
Jimenez á 30 mörk í 100 landsleikjum með Mexíkó og gæti verið arftaki Aleksandar Mitrovic sem vill fara til Sádí-Arabíu.
Jimenez er fyrsti leikmaðurinn sem Marco Silva fær til Fulham í sumar en félagið hefur áhuga á að styrkja ýmsar stöður á vellinum eftir að hafa náð tíunda sæti á síðustu leiktíð sem nýliðar í ensku úrvalsdeildinni.
Bienvenido, Raúl! ????????
— Fulham Football Club (@FulhamFC) July 25, 2023





