Lék fyrir unglingalið Tottenham og fer til ÍBV (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV er búið að krækja í Chloe Hennigan frá írska félaginu Treaty United, þar sem hún var með fast sæti í byrjunarliðinu.
Chloe er fædd 2001 og var hjá Athlone Town og CK United áður en hún gekk í raðir Treaty, en þar áður lék hún fyrir unglingalið Tottenham.
Chloe spilar sem varnarmaður og er fengin til að hjálpa ÍBV í fallbaráttu Bestu deildar kvenna.
Eyjakonur eru í áttunda sæti deildarinnar eftir stórt tap á Sauðárkróki um helgina. Þær vonast til að Chloe geti hjálpað til strax í næsta leik sem er á heimavelli gegn stórliði Vals.





