Jóan Símun Edmundsson í KA (Staðfest)

Jóan Símun gæti spilað gegn Dundalk á fimmtudag.

Mynd: KA

Mynd: Getty Images

Færeyski landsliðssóknarmaðurinn Jóan Símun Edmundsson er kominn í KA en hann hefur skrifað undir samning út yfirstandandi tímabil.
Jóan Símun var einnig í viðræðum við Breiðablik sem ákvað síðan að draga sig út úr þeim, samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Jóan Símun á 32 ára afmæli á morgun og er lykilmaður í færeyska landsliðinu þar sem hann hefur leikið 79 landsleiki og gert í þeim 8 mörk.

„Jóan hóf feril sinn með B68 Toftir í Færeyjum og hefur átt gríðarlega flottan feril þar sem hann hefur leikið með stórum liðum eins og Newcastle, Viking, Fredericia, Vejle, OB, Arminia Bielefeld og loks Beveren. Jóan var laus allra mála hjá Beveren og gat því gengið í raðir KA strax," segir á heimasíðu KA.
„Hallgrímur Jónasson þjálfari KA lék með Jóan Símun með liði OB í Danmörku og ber honum afar vel söguna. Það fer ekki á milli mála að hér er á ferðinni hörkuleikmaður enda sannað sig í efstu deild í Þýskalandi og Danmörku sem og með landsliði Færeyja."
„KA liðið stendur í ströngu á þremur vígsstöðvum og afar sterkt að fá Jóan í okkar raðir fyrir þau átök. Strákarnir taka á móti Dundalk í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA á Framvellinum á fimmtudaginn og viku síðar mætast liðin ytra. Þá eru strákarnir komnir í bikarúrslitaleikinn auk þess sem gríðarlega hörð barátta er í Bestu deildinni."
„Það verður frábært að fylgjast með þessum öfluga kappa í gula og bláa búningnum og bjóðum við hann hjartanlega velkominn í KA. Minnum á að miðasala á stórleikinn gegn Dundalk á fimmtudaginn er í fullum gangi í Stubb og aldrei að vita nema Jóan leiki þar sinn fyrsta leik fyrir KA."

???????? Bjóðum Jóan Símun Edmundsson hjartanlega velkominn í KA! #LifiFyrirKA https://t.co/j52J5Kfzj0 pic.twitter.com/TzbolEHxo3
— KA (@KAakureyri) July 25, 2023

Mynd: Getty Images