Nashville kaupir Surridge frá Forest (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Bandaríska MLS félagið Nashville SC hefur fest kaup á enska framherjanum Sam Surridge frá Nottingham Forest.
Surridge er 24 ára gamall og ólst upp hjá Bournemouth en var seldur til Stoke áður en Forest keypti hann í sínar raðir fyrir rétt rúmar 2 milljónir punda.
Talið er að Nashville greiði um 5 milljónir fyrir Surridge, sem skoraði 7 mörk í 17 leikjum við komu sína til Forest og hjálpaði félaginu að næla sér í sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Úrvalsdeildin reyndist þó alltof stórt stökk fyrir leikmanninn þar sem hann kom við sögu í 20 leikjum og skoraði aðeins eitt mark. Núna reynir hann fyrir sér í Bandaríkjunum.
Surridge gerir þriggja ára samning við Nashville með möguleika á auka ári.





