Pálmi Rafn tekur við kvennaliði KR (Staðfest)

Mynd: KR

Mynd: KR

Pálmi Rafn Pálmason var í dag kynntur sem nýr þjálfari kvennaliðs KR.
Pálmi er auðvitað KR-ingum vel kunnugur en hann var fyrirliði liðsins þar til hann lagði skóna á hilluna á síðasta ári. Hann lék með KR-ingum í sjö ár frá 2015 til 2022.
Hann tók skóna fram í sumar til að spila með Völsungi í 2. deildinni, samhliða því að sinna stöðu íþróttastjóra hjá KR og stýrt 4. flokki karla við góðan orðstír.
Pálmi hefur nú tekið að sér að þjálfa kvennalið félagsins en hann samdi út tímabilið.
Jamie Paul Brassington og Vignir Snær Stefánsson verða honum til aðstoðar.
KR er í næst neðsta sæti Lengjudeildarinnar með 7 stig en liðið er nýliði eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni á síðasta ári.