Brighton sendir Sarmiento til West Brom (Staðfest)


Mynd: Brighton


Mynd: Getty Images


Mynd: Brighton
Brighton & Hove Albion er búið að lána kantmanninn efnilega Jeremy Sarmiento til West Brom í Championship deildinni.
Sarmiento er 21 árs gamall og kom við sögu í 12 leikjum með Brighton á síðustu leiktíð.
Hann þykir gríðarlega efnilegur og á 13 landsleiki að baki fyrir Ekvador, þar sem hann kom við sögu í öllum leikjum liðsins í riðlakeppni HM í Katar.
Sarmiento, sem er alinn upp hjá Charlton og Benfica, á fjögur ár eftir af samningi.
West Brom endaði í níunda sæti ensku Championship deildarinnar í fyrra, aðeins þremur stigum frá eftirsóttu umspilssæti.
Welcome to West Bromwich Albion, Jeremy Sarmiento! ???????? pic.twitter.com/OAF6NM0awl
— West Bromwich Albion (@WBA) July 25, 2023


Mynd: Getty Images





