Castellanos til Lazio (Staðfest) - Sow næstur


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Lazio er búið að festa kaup á Valentín 'Taty' Castellanos, 24 ára framherja sem skoraði 14 mörk í 37 leikjum á láni hjá Girona á síðustu leiktíð.
Lazio borgar 15 milljónir evra til New York City FC, en Castellanos var algjör markavél í bandarísku MLS deildinni áður en hann fór á lán til Spánar.
Þessi argentínski framherji, með 6 leiki að baki fyrir U23 landsliðið sem fór á Ólympíuleikana 2020 en komst ekki upp úr riðli, gerir sex ára samning við ítalska félagið.
Hann mun veita Ciro Immobile alvöru samkeppni um framherjastöðuna en Immobile átti slakt síðasta tímabil miðað við sína háleitu staðla og skoraði 14 mörk í 38 leikjum í öllum keppnum.
Castellanos er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Lazio í sumar eftir Matteo Cancellieri og Diego González sem voru báðir á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð. Þeir eru báðir efnilegir kantmenn, en Gonzalez skoraði 10 mörk í 10 leikjum fyrir unglingaliðið á meðan Cancellieri tók þátt í 30 leikjum með aðalliðinu á síðustu leiktíð, án þess að koma boltanum í netið.
Lazio greiðir rúma milljón evra fyrir Gonzalez og um 10 milljónir fyrir Cancellieri.
Þá er Djibril Sow einnig á leið til félagsins frá Eintracht Frankfurt og mun kosta rúmlega 15 milljónir evra í heildina.
Sow er öflugur miðjumaður með aðeins eitt ár eftir af samningi hjá Frankfurt. Hann á að fylla í skarðið sem Sergej Milinkovic-Savic skilur eftir sig með félagsskiptunum til Sádí-Arabíu.
Sow er mikilvægur hlekkur í svissneska landsliðinu auk þess að vera lykilmaður hjá Frankfurt.
Í heildina er Lazio að greiða um 45 milljónir evra fyrir þessa fjóra leikmenn, sem er aðeins meira heldur en félagið fékk fyrir söluna á Milinkovic-Savic.


Mynd: EPA


Mynd: EPA





