
Víkingurinn Sörloth til Villarreal (Staðfest)

Sörloth er rétt tæpir tveir metrar á hæð.

Mynd: EPA

Sörloth er rétt tæpir tveir metrar á hæð.

Mynd: EPA
Norski framherjinn Alexander Sörloth er búinn að semja við Villarreal sem kaupir hann af þýska félaginu RB Leipzig fyrir rétt rúmar 10 milljónir evra.
Sörloth er 27 ára gamall og lék á láni hjá Real Sociedad síðustu tvær leiktíðir við góðan orðstír. Hann þekkir því til spænska boltans.
Sörloth skoraði 16 mörk í 46 leikjum á síðustu leiktíð og er spennandi kostur til að fylla í skarðið fyrir Nicolas Jackson, sem var seldur til Chelsea fyrr í sumar.
Sörloth er sjötti leikmaðurinn til að ganga í raðir Villarreal í sumar eftir Pepelu, Ben Brereton Díaz, Ilias Akhomach, Denis Suárez og Fabio Blanco. Það er mikið umbreytingasumar í kortunum hjá félaginu sem er búið að missa menn á borð við Pau Torres, Arnaut Danjuma og Boulaye Dia. Þá er Samuel Chukwueze á leið burt.
Villarreal endaði í fimmta sæti spænsku deildarinnar á síðustu leiktíð og leikur því í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust.
???????? ???????????????????????????????????????????????????????????????? ???? pic.twitter.com/1tf70DLJtD
— Villarreal CF (@VillarrealCF) July 25, 2023





