Stuttgart fær Nübel frá Bayern (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Stuttgart er búið að klófesta markvörðinn eftirsótta Alexander Nübel á láni frá Þýskalandsmeisturum FC Bayern.
Nubel er 26 ára gamall og var lykilmaður í liði Schalke áður en hann skipti til Bayern á frjálsri sölu og fékk harða gagnrýni fyrir.
Stuðningsmenn Schalke voru brjálaðir út í Nubel sem ákvað að fara frítt til að vera varaskeifa fyrir Manuel Neuer, sem er af mörgum talinn einn af allra bestu markvörðum fótboltasögunnar.
Nubel leiddist bekkjarsetan og var að lokum lánaður til AS Mónakó, þar sem hann reyndist mikilvægur hlekkur og var hjá félaginu í tvö ár.
Nubel á tvö ár eftir af samningi hjá Bayern, en það verður aðeins eitt þegar hann kemur til baka úr láninu.
Leeds United er meðal félaga sem reyndi að krækja í Nubel í sumar.
Stuttgart rétt bjargaði sér frá falli úr efstu deild þýska boltans í sumar með sannfærandi umspilssigri gegn þriðja sætinu úr B-deildinni.
Steht ihm, oder? ????????#VfB | #Training #Nübel pic.twitter.com/k0ofEUR734
— VfB Stuttgart (@VfB) July 25, 2023


Mynd: EPA





