Fotbolti.net
26.07.23 - 18:22
Brynjar Ingi Erluson

Malcom til Al-Hilal fyrir 60 milljónir evra (Staðfest)

Malcom til Al-Hilal fyrir 60 milljónir evra (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Al-Hilal frá Sádi-Arabíu hefur fest kaup á brasilíska vængmanninum Malcom en hann kemur frá Zenit í Rússlandi.
Þetta er fjórða stjarnan sem Al-Hilal fær í glugganum á eftir Kalidou Koulibaly, Sergej Milinkovic-Savic og Ruben Neves.

Al-Hilal náði samkomulagi við Zenit á dögunum um kaup á Malcom en hann kostar félagið 60 milljóna evra.

Félagið staðfesti kaupin á samfélagsmiðlum í dag en þetta er svo sannarlega ekki síðasti leikmaðurinn sem Al-Hilal kaupir í sumar.

Paris Saint-Germain samþykkti á dögunum 300 milljóna evra tilboð Al-Hilal í Kylian Mbappe en Frakkinn hefur þó lítinn áhuga á að fara til Sádi-Arabíu.

Aleksandar Mitrovic, framherji Fulham, er þá á leið til félagsins fyrir 60 milljónir evra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.