Fotbolti.net
25.07.23 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rafnar Máni klárar tímabilið hjá Völsungi (Staðfest)

Rafnar Máni klárar tímabilið hjá Völsungi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Vösungur tilkynnti í morgun að Rafnar Máni Gunnarsson væri kominn heim í Völsung á láni frá Þór út tímabilið.

„Rafnar var í sístækkandi hlutverki hjá Völsungi síðustu þrjú tímabil og er mikill fengur fyrir okkar lið."
„Við bjóðum Rafnar hjartanlega velkominn heim í baráttuna en hann er gjaldgengur í leikinn gegn Hetti/Huginn á Egilsstöðum kl.17 í dag," segir í færslu Græna hersins á Facebook.

Rafnar er fjölhæfur leikmaður sem kom við sögu í fimm leikjum í Lengjudeildinni með Þór og fjórum leikjum í Mjólkurbikarnum.

Á síðasta tímabili skoraði hann fjögur mörk í nítján leikjum í 2. deild með Völsungi.

Eins og segir í tilkynningunni má Rafnar spila með Völsungi gegn Hetti/Hugin í dag.

2. deild karla
17:00 Höttur/Huginn-Völsungur (Vilhjálmsvöllur)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.