Igor Julio til Brighton (Staðfest)

Igor Julio.

Mynd: Getty Images

Igor Julio.

Mynd: Getty Images
Brighton hefur keypt brasilíska miðvörðinn Igor Julio frá Fiorentina fyrir 14,5 milljónir punda. Þessi 25 ára leikmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið.
Roberto de Zerbi stjóri Brighton beindi athygli sinni að Igor eftir að félagið gafst upp á að fá Levi Colwill frá Chelsea. 40 milljóna punda tilboði félagsins var hafnað en Colwill var á láni hjá Brighton á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að enda í sjötta sæti.

„Igor er annar mikilvægur leikmaður sem getur hjálpað okkur mikið," segir De Zerbi en Igor er fyrrum leikmaður Red Bull Salzburg. Hann fór til Fiorentina frá SPAL í janúar 2020.
Hann er harður í horn að taka, fékk tólf gul spjöld og tvö rauð í 45 leikjum.
„Það var æskudraumur minn að spila í ensku úrvalsdeildinni. Ég er mjög spenntur," segir Igor.
Brighton hefur keypt Joao Pedro frá Watford, markvörðinn Bart Verbruggen frá Anderlecht og fengið þá James Milner og Mahmoud Dahoud á frjálsri sölu.

Our new Brazilian is in the building. ?????? pic.twitter.com/c35vxeTSA0
— Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) July 26, 2023