Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25175 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR13.08.2023, 08:30

Diego Costa til Botafogo (Staðfest)

Diego Costa er genginn til liðs við Botafogo í Brasilíu. Costa er fæddur í Brasilíu en lék með spænska landsliðinu á sínum ferli.

FRÉTTIR12.08.2023, 18:46

Traore til liðs við Fulham (Staðfest)

Adama Traore er genginn til liðs við Fulham á frjálsri sölu eftir að samningurinn hans við Wolves rann út í sumar.

Hann gerir tveggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR12.08.2023, 16:16

FH fær Snædísi frá Stjörnunni (Staðfest)

Snædís María Jörundsdóttir, sem hefur komið við sögu í 12 af 15 leikjum Stjörnunnar í Bestu deildinni í sumar, er farin til FH á lánssamningi sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR12.08.2023, 15:40

Marquinhos til Nantes á láni (Staðfest)

Franska félagið Nantes er búið að tryggja sér brasilíska kantmanninn Marquinhos á lánssamningi frá Arsenal sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR12.08.2023, 15:16

Son tekur við fyrirliðabandinu af Hugo Lloris (Staðfest)

Suður-kóreski kantmaðurinn Son Heung-min er nýr fyrirliði Tottenham Hotspur. Hann tekur við fyrirliðabandinu af hinum 36 ára gamla Hugo Lloris sem hefur fengið leyfi til að yfirgefa Tottenham í sumar, þó hann eigi eitt ár eftir af samningi.

FRÉTTIR12.08.2023, 08:41

Ousmane Dembele til PSG (Staðfest)

PSG tilkynnti rétt í þessu frá kaupum á Ousmane Dembele sem kemur til franska félagsins frá Barcelona. Franski kantmaðurinn hefur verið hjá Barcelona síðan 2017 en þá var hann keyptur á risaupphæð frá þýska félaginu Dortmund. Hann kom í kjölfar sölu Barcelona á Neymar og varð Dembele næst dýrasti leikmaður í sögunni á eftir Neymar. Dembele er 26 ára franskur landsliðsmaður sem glýmdi talsvert við meiðsli hjá Barca en lék þó í heildina 185 leiki og skoraði 40 mörk fyrir félagið á sex tímabilum.

FRÉTTIR12.08.2023, 08:29

Harry Kane langdýrasti leikmaður í sögu Bayern (Staðfest)

Harry Kane er genginn í raðir þýsku meistaranna í Bayern Munchen frá Tottenham og skrifar hann undir samning út tímabilið 2027. Kane er markahæsti leikmaður í sögu Tottenham og einungis Alan Shearer hefur skorað fleiri mörk en hann í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Hann átti innan við ár eftir af samningi sínum við Tottenham og því taldi Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, að hann yrði að samþykkja risatilboð þýska félagsins í framherjann. Eftir nítján ár, 435 leiki (með aðalliðinu), 280 mörk og 64 stoðsendingar er Kane farinn frá Tottenham.

FRÉTTIR12.08.2023, 08:17

Þorri keyptur til Öster (Staðfest)

Þorri Mar Þórisson er genginn til liðs við sænska félagið Öster sem kaupir hann af KA. Salan á bakverðinum hefur legið fyrir í smá tíma og var greint frá því hér á Fótbolti.net í upphafi vikunnar að Öster yrði næsti áfangastaður Þorra. KR og Valur höfðu einnig áhuga á Dalvíkingnum.

FRÉTTIR12.08.2023, 07:40

Arsenal lánar Patino til Swansea (Staðfest)

Swansea City er búið að tryggja sér Charlie Patino á eins árs lánssamningi frá Arsenal þrátt fyrir fregnir um að leikmaðurinn vildi ekki vera lánaður aftur út.

FRÉTTIR11.08.2023, 23:48

Hjörvar hættur með KV (Staðfest)

Hjörvar Ólafsson er hættur störfum hjá KV en liðið situr sem fastast á botni 2. deildar karla sem stendur, með 8 stig eftir 15 umferðir.

FRÉTTIR11.08.2023, 12:30

Þróttur fær portúgalskan varnarmann (Staðfest)

Þróttur Reykjavík hefur fengið til sín portúgalskan varnarmann, hinn þrítuga Sergio Oulu sem lék síðast fyrir Florö í norsku 3. deildinni. Oulu er miðvörður en getur einnig leyst stöðu varnartengiliðs. Á ferli sínum hefur hann víða komið við í portúgölsku neðri deildunum.

FRÉTTIR11.08.2023, 11:03

Eyþór kallaður til baka til Breiðabliks (Staðfest)

Eyþór Aron Wöhler hefur verið kallaður til baka úr láni hjá HK og mun klára tímabilið með Breiðabliki. Þetta staðfesti Ólafur Kristjánsson, yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki, í samtali við Vísi í dag. Eyþór var lánaður til HK í vor og var ljóst að Breiðablik gæti kallað hann til baka úr láninu.

FRÉTTIR11.08.2023, 10:51

Táningurinn Chermiti til Everton (Staðfest)

Everton hefur keypt táninginn Youssef Chermiti frá Sporting Lissabon fyrir fimmtán milljónir punda og hefur hann gert fjögurra ára samning við félagið. Sóknarmaðurinn er nítján ára, skoraði þrjú deildarmörk og spilaði alls 22 leiki í öllum keppnum á síðasta tímabili.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.