Fotbolti.net
12.08.23 - 08:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Harry Kane langdýrasti leikmaður í sögu Bayern (Staðfest)

Harry Kane langdýrasti leikmaður í sögu Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Bayern Munchen

Harry Kane er genginn í raðir þýsku meistaranna í Bayern Munchen frá Tottenham og skrifar hann undir samning út tímabilið 2027. Kane er markahæsti leikmaður í sögu Tottenham og einungis Alan Shearer hefur skorað fleiri mörk en hann í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Hann átti innan við ár eftir af samningi sínum við Tottenham og því taldi Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, að hann yrði að samþykkja risatilboð þýska félagsins í framherjann.

Eftir nítján ár, 435 leiki (með aðalliðinu), 280 mörk og 64 stoðsendingar er Kane farinn frá Tottenham.
„Ég er mjög ánægður að verða orðinn hluti af Bayern sem er eitt stærsta félag í heimi og ég hef alltaf sagt að ég vildi sanna mig á hæsta stigi á mínum ferli. Það sem einkennir Bayern er sigurkúltúrinn - það er mjög góð tilfinning að vera kominn hingað," segir Kane.

Bayern gerir Kane að langdýrasta leikmanni í sögu félagsins en hann er talinn kosta félagið 120 milljónir evra þegar allar árangurstengdar greiðslur eru reiknaðar með í dæmið. Áður var Lucas Hernandez sem Bayern greiddi 80 milljónir fyrir árið 2019 dýrasti leikmaður í sögu félagsins.

Kane er þrítugur og er fyrirliði enska landsliðsins. Hann tekur við treyju númer níu hjá Bayern af Robert Lewandowski sem yfirgaf félagið fyrir ári síðan og hélt til Barcelona. Hér að neðan má sjá tilfinningaríka kveðju Kane til stuðningsmanna Tottenham.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.