Leipzig borgar 35 milljónir fyrir Lukeba (Staðfest)

Lukeba í baráttunni við Fabio Miretti, unglingalandsliðsmann Ítalíu og leikmann Juventus.

Mynd: EPA

Lukeba í baráttunni við Fabio Miretti, unglingalandsliðsmann Ítalíu og leikmann Juventus.

Mynd: EPA
RB Leipzig er búið að kaupa arftaka Josko Gvardiol í hjarta varnarinnar. Sá heitir Castello Lukeba og er miðvörður Lyon og franska U21 árs landsliðsins.
Leipzig fékk um 100 milljónir evra fyrir Gvardiol og borgar um 35 milljónir fyrir Lukeba, sem er 20 ára gamall.
Lukeba vann sér inn byrjunarliðssæti í varnarlínu Lyon á þarsíðustu leiktíð og gerir nú fimm ára samning við Leipzig.
Leipzig endaði í þriðja sæti þýsku deildarinnar á síðustu leiktíð og leikur því í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í haust. Lyon endaði óvænt í sjöunda sæti í frönsku deildinni og tekur því ekki þátt í neinni Evrópukeppni.
????????
— RB Leipzig (@RBLeipzig) August 11, 2023
Bald mehr davon in unserem Trikot ????#Lukeba #WirSindLeipzig ?????? pic.twitter.com/0eNJdWrkE6




