Fotbolti.net
11.08.23 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Þróttur fær portúgalskan varnarmann (Staðfest)

Sergio Oulu.

Sergio Oulu.

Canon

Mynd: Getty Images

Lengjudeildin
Þróttur Reykjavík hefur fengið til sín portúgalskan varnarmann, hinn þrítuga Sergio Oulu sem lék síðast fyrir Florö í norsku 3. deildinni.

Oulu er miðvörður en getur einnig leyst stöðu varnartengiliðs. Á ferli sínum hefur hann víða komið við í portúgölsku neðri deildunum.
Þróttur er í tíunda sæti Lengjudeildarinnar, aðeins stigi frá fallsæti. Liðið fór í gegnum júlímánuð án þess að vinna leik og tapaði í fallbaráttuslag gegn Njarðvík 3-5 í síðustu umferð.

Oulu fær leikheimild á morgun en þá leikur Þróttur mikilvægan leik gegn Selfossi, hann hefst klukkan 17.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.