Fotbolti.net
12.08.23 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson

Arsenal lánar Patino til Swansea (Staðfest)

Arsenal lánar Patino til Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Swansea City er búið að tryggja sér Charlie Patino á eins árs lánssamningi frá Arsenal þrátt fyrir fregnir um að leikmaðurinn vildi ekki vera lánaður aftur út.

Patino er 19 ára miðjumaður sem á ennþá tvö ár eftir af samningi hjá Arsenal eftir að félagið virkjaði samningsákvæði fyrr á árinu.

Patino kom að 7 mörkum í 37 leikjum með Blackpool á síðustu leiktíð og eru ýmis félög áhugasöm um að krækja í þennan efnilega leikmann.

The Athletic greindi frá því í sumar að Patino yrði seldur frá Arsenal en vandamálið virðist vera að ekkert félag er reiðubúið til að borga þær rúmu 10 milljónir punda sem Arsenal vill fyrir.

Patino er sjöundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Swansea í sumar. Hann á 20 landsleiki að baki fyrir unglingalið Englands en var ekki valinn í lokahópinn fyrir HM U20 ára landsliða í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.