
Sevilla vann kappið um Sow (Staðfest) - Rony Lopes seldur


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Spænska félagið Sevilla er búið að vinna kappið um svissneska landsliðsmanninn Djibril Sow sem var orðaður við ýmis stórlið í sumar.
Útlit var fyrir að Sow væri á leið til Lazio á Ítalíu en hann endaði hjá Evrópudeildarmeisturum Sevilla, sem borga um 13 milljónir evra fyrir.
Sow er afar vinnusamur miðjumaður sem er bæði góður varnar- og sóknarlega en hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Eintracht Frankfurt.
Hann er 26 ára gamall og hefur verið í lykilhlutverki í sterku liði Frankfurt, auk þess að eiga 38 landsleiki að baki fyrir Sviss.
Sevilla var þá að selja Rony Lopes til portúgalska félagsins Braga. Lopes þótti einn af efnilegustu leikmönnum heims á sínum tíma og var hjá Manchester City í fjögur ár en stóðst að lokum ekki væntingarnar.
Lopes er 27 ára gamall og aðeins með tvo A-landsleiki að baki fyrir Portúgal, en hann spilaði 65 leiki upp yngri landsliðin.
Kantmaðurinn knái gerði flotta hluti á láni hjá Troyes, systurfélagi Man City, á síðustu leiktíð. Hann vakti verðskuldaða athygli á sér og er núna búinn að gera þriggja ára samning við Braga.
Talið er að Braga hafi fengið Lopes á frjálsri sölu en Sevilla gæti hafa haldið góðri prósentu af endursölurétti enda átti leikmaðurinn eitt ár eftir af samningi.


Mynd: Getty Images




