Fotbolti.net
11.08.23 - 11:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eyþór kallaður til baka til Breiðabliks (Staðfest)

Eyþór kallaður til baka til Breiðabliks (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Eyþór Aron Wöhler hefur verið kallaður til baka úr láni hjá HK og mun klára tímabilið með Breiðabliki. Þetta staðfesti Ólafur Kristjánsson, yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki, í samtali við Vísi í dag.

Eyþór var lánaður til HK í vor og var ljóst að Breiðablik gæti kallað hann til baka úr láninu.
Ólafur sagði við Vísi að hann vonaðist til þess að Eyþór gæti spilað með Breiðabliki gegn KA á sunnudag. Það hefur gengið eftir því Eyþór er kominn með leikheimild með Breiðabliki.

Eyþór sneri aftur á völlinn eftir meiðsli á miðvikudag og hjálpaði hann HK að sigra Keflavík. Eyþór lagði upp markið sem kom HK yfir í uppbótartíma og skoraði svo stuttu síðar markið sem innsiglaði 3-1 sigur HK.

Hann er 21 árs framherji sem kom til Breiðabliks frá ÍA eftir síðasta tímabil. Eyþór hefur skorað þrjú mörk og lagt upp eitt í 13 leikjum í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.