Fotbolti.net
12.08.23 - 08:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þorri keyptur til Öster (Staðfest)

Þorri keyptur til Öster (Staðfest)
Canon

Mynd: Öster

Þorri Mar Þórisson er genginn til liðs við sænska félagið Öster sem kaupir hann af KA.

Salan á bakverðinum hefur legið fyrir í smá tíma og var greint frá því hér á Fótbolti.net í upphafi vikunnar að Öster yrði næsti áfangastaður Þorra. KR og Valur höfðu einnig áhuga á Dalvíkingnum.
Þorri, sem er 24 ára, skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2026.

„Þorri er nútíma varnarmaður sem er með sérstaklega mikinn hraða. Hann er spennandi leikmaður sem getur bæði spilað hægra megin og vinstra megin, þó hægri bakvörður sé hans aðalstaða. Hann er týpa af leikmanni sem við höfum virkilega trú á að geti passað inn í okkar leikstíl," segir Vivo Stavljanin, yfirmaður fótboltamála hjá Öster.

„Ég er afskaplega spenntur og glaður að fá tækifæri til að hjálpa Öster að komast aftur í efstu deild í Svíþjóð þar sem félagið á heima. Ég get ekki beðið eftir því að berjast fyrir Öster og stuðningsmennina," segir Þorri við undirskrift.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.