Markvörður frá Chelsea nýr liðsfélagi Guðlaugs Victors (Staðfest)


Mynd: Heimasíða Chelsea


Mynd: Heimasíða Chelsea
Guðlaugur Victor Pálsson er nýlega genginn til liðs við KAS Eupen sem leikur í efstu deild í Belgíu.
Liðið bjargaði sér frá falli á síðustu leiktíð en vill bæta frammistöðu sína og hefur því verið að styrkja sig. Nýjasta viðbótin er Gabriel Slonina, framtíðarmarkvörður Chelsea sem kemur á eins árs lánssamningi.
Slonina er 19 ára gamall og með einn A-landsleik að baki fyrir Bandaríkin, en Chelsea borgaði um 11 milljónir dollara til að kaupa hann frá Chicago Fire.
Markverðirnir Kepa Arrizabalaga og Robert Sánchez berjast um byrjunarliðssætið hjá Chelsea, með Marcus Bettinelli til vara.
????????‘???? ???????????????????????????????? ????
— KAS Eupen (@kas_eupen) August 10, 2023
Chelsea goalkeeper Gabriel Slonina on loan to KAS Eupen this season ????
Welcome to the Panda Family @GabrielSlonina ???? #goalkeeper #chelsea #kaseupen #teampanda pic.twitter.com/v17NGee5IM




