Fotbolti.net
11.08.23 - 23:48
Ívan Guðjón Baldursson

Hjörvar hættur með KV (Staðfest)

Hjörvar hættur með KV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjörvar Ólafsson er hættur störfum hjá KV en liðið situr sem fastast á botni 2. deildar karla sem stendur, með 8 stig eftir 15 umferðir.

Hjörvar var einn af stofnendum KV fyrir 20 árum, þá 18 ára gamall, og stýrði félaginu sumarið 2015 til fjórða sætis í 2. deildinni en hætti svo til að taka við þjálfun yngriflokka hjá Stjörnunni.

Hann var ráðinn aftur fyrir sumarið en gengi liðsins hefur ekki verið viðunandi það sem af er tímabils.

Ef KV fellur í haust verður það annað fallið í röð, þar sem liðið lék í Lengjudeildinni í fyrrasumar en féll með 18 stig úr 22 umferðum.

„Stjórn KV og Hjörvar Ólafsson hafa tekið þá sameiginlegu ákvörðun að Hjörvar stigi til hliðar sem aðalþjálfari liðsins," segir meðal annars í yfirlýsingu frá KV.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.