Arsenal kynnir Rice (Staðfest)

Arsenal er búið að staðfesta félagsskipti Declan Rice til félagsins frá West Ham United fyrir metfé.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25177 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Arsenal er búið að staðfesta félagsskipti Declan Rice til félagsins frá West Ham United fyrir metfé.

Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton er búið að staðfesta samkomulag við rúmenska félagið FCV Farul Constanta um kaup á kantmanninum efnilega Adrian Mazilu.

Marseille er búið að krækja í brasilíska bakvörðinn Renan Lodi frá Atletico Madrid.

RB Leipzig er búið að staðfesta komu belgíska framherjans Loïs Openda frá RC Lens í Frakklandi.

Rasmus Kristensen er genginn til liðs við Roma á láni frá Leeds út komandi tímabil.

Ajax hefur staðfest að fyrirliðinn Dusan Tadic sé farinn frá félaginu. Þetta er ári áður en samningurinn hans átti að renna út.

Birmingham City hefur keypt vængmanninn Siriki Dembele frá Bournemouth. Þessi 26 ára leikmaður spilaði 22 leiki fyrir Bournemouth og skoraði tvö mörk en hann var á láni hjá Auxerre í Frakklandi seinni hluta síðasta tímabils. Birmingham var að selja Tahith Chong til Luton en fær Dembele í staðinn. Dembele skrifaði undir þriggja ára samning.
Nani, fyrrum leikmaður Manchester United, er enn í fullu fjöri og hefur samið við tyrkneska félagið Adana Demirspor. Nani er 36 ára og spilaði með Melbourne Victory í Ástralíu á síðasta tímabili. Demirspor er hans tíunda félag á ferlinum en Patrick Kluivert, fyrrum leikmaður AC Milan, Barcelona og hollenska landsliðsins, tók við stjórn liðsins nýlega. Nani gerir eins árs samning með möguleika á framlengingu um annað ár. „Mjög ánægður með að vera kominn aftur til Tyrklands. Ég er tilbúinn að leggja mig allan fram fyrir félagið. Hefjumst handa!" skrifaði Nani á Twitter en hann hefur áður spilað í tyrknesku deildinni, með Fenerbahce 2015-16.
Hollenski landsliðsvarnarmaðurinn Jurrien Timber hefur gengið í raðir Arsenal frá Ajax. Þessi 22 ára leikmaður var lykilmaður hjá Ajax þar sem hann lék 121 aðalliðsleik, vann tvo deildarmeistaratitla og hollenska bikarinn. Timber kom í akademíu Ajax 2014 ásamt Quinten tvíburabróður sínum sem spilar fyrir Feyenoord.
Bakvörðurinn Alex Freyr Elísson hefur skrifað undir lánssamning hjá KA og leikur með liðinu út yfirstandandi tímabil. „Þetta eru afar jákvæðar fréttir enda Alex Freyr afar öflugur bakvörður sem mun án efa styrkja okkar öfluga lið," stendur á heimasíðu KA.
Nýliðar Luton Town hafa fengið til sín vængmanninn Tahith Chong, fyrrum leikmann Manchester United. Luton kaupir Chong frá Birmingham á 4 milljónir punda. Þessi 23 ára gamli leikmaður yfirgaf United í fyrra fyrir um 1,5 milljón punda eftir vel heppnaða lándsvöl hjá Birmingham tímabilið á undan. Hann lék 41 leik fyrir þá bláu síðasta tímabil og skoraði fjögur mörk þegar liðið hafnaði í 17. sæti Championship-deildarinnar.

Tyrkneska stórveldið Galatasaray er búið að tryggja sér spænska sóknarbakvörðinn Angelino frá RB Leipzig.

Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain eru búnir að kynna nýjasta leikmann félagsins, hinn 18 ára gamla Cher Ndour.

Þýska félagið Mainz er búið að tryggja sér varnarmanninn Sepp van den Berg á lánssamningi út tímabilið.

AFC Bournemouth er búið að staðfesta kaup á franska miðjumanninum Romain Faivre sem kostar um 15 milljónir evra og kemur úr röðum Lyon.

Leeds og Al-Rayyan eru búin að staðfesta félagsskipti Rodrigo sem fer til katarska félagsins á gjafaprífs.

AC Milan hefur gengið frá kaupum á bandaríska leikmanninum Christian Pulisic sem kemur frá enska félaginu Chelsea. Kaupin hafa legið fyrir í talsverðan tíma en nú er búið að skrifa undir alla pappíra og allt við skiptin frágengið. Pulisic kom til Chelsea árið 2019 frá Dortmund. Hann skoraði 26 mörk í 145 leikjum fyrir Chelsea og er þrennan gegn Burnley minnistæð sem og markið og stoðsendingin í undanúrslitaeinvíginu gegn Real Madrid í Meistaradeildinni vorið 2021.
Sænski sóknarmaðurinn Viktor Gyökeres er orðinn leikmaður Sporting Lissabon í Portúgal. Coventry City í Championship-deildinni selur hann á metupphæð hjá félaginu. Coventry tapaði í úrslitaleik umspilsins á síðasta tímabili og mistókst að komast upp. Gyökeres er 25 ára en Coventry hefur þegar fengið leikmann til að fylla hans skarð, Ellis Simms sem kom frá Everton. Gyökeres var í fimm tímabil í breskum fótbolta síðan Brighton keypti hann frá Brommapojkarna í Svíþjóð í desember 2017. Á síðasta tímabili skoraði hann 21 mark og átti 12 stoðsendingar og varð þar með einn verðmætasti leikmaður Championship-deildarinnar. Talað er um að Coventry hafi selt hann á 18,5 milljónir punda. Áður var Robbie Keane stærsta sala félagsins, hann fór til Inter fyrir 13 milljónir punda í ágúst 2000. Þá er hann dýrasti leikmaður í sögu Sporting Lissabon sem borgaði 13,7 milljónir punda fyrir sóknarmanninn Paulinho sem kom frá Sporting Braga í janúar 2021.
Sheffield United, sem vann sér í vetur sæti í ensku úrvalsdeildinni, hefur gengið frá kaupum á Anis Ben Slimane frá danska félaginu Bröndby. Slimane, sem er 22 ára miðjumaður, skrifar undir þriggja ára samning við enska félagið.
Ashley Young er genginn í raðir Everton á frjálsri sölu frá Ashley Young þar sem samningur hans rann út í lok síðasta mánaðar. Hann hafnaði tilboðum frá öðrum úrvalsdeildarfélögum, félögum úr Championship og annars staðar í Evrópu til að ganga í raðir Everton.