Pulisic til Milan (Staðfest)

Mynd: AC Milan

Mynd: AC Milan
AC Milan hefur gengið frá kaupum á bandaríska leikmanninum Christian Pulisic sem kemur frá enska félaginu Chelsea.
Kaupin hafa legið fyrir í talsverðan tíma en nú er búið að skrifa undir alla pappíra og allt við skiptin frágengið.
Pulisic kom til Chelsea árið 2019 frá Dortmund. Hann skoraði 26 mörk í 145 leikjum fyrir Chelsea og er þrennan gegn Burnley minnistæð sem og markið og stoðsendingin í undanúrslitaeinvíginu gegn Real Madrid í Meistaradeildinni vorið 2021.

Hann vann Meistaradeildina með Chelsea 2021 og í kjölfarið evrópska Ofurbikarinn og HM félagsliða. Hann er í dag markahæsti ameríski leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar.
Hann á að baki 60 landsleiki fyrir Bandaríkin og hefur í þeim skorað 25 mörk. Ítalska félagið er sagt greiða um 20 milljónir punda fyrir Pulisic.
Pulisic er 24 ára gamall og skrifar undir fjögurra ára samning við Milan með möguleika á ári til viðbótar. Hann verður í treyju númer 11 hjá Milan.