Fotbolti.net
13.07.23 - 10:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ashley Young til Everton (Staðfest)

Ashley Young til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ashley Young er genginn í raðir Everton á frjálsri sölu frá Ashley Young þar sem samningur hans rann út í lok síðasta mánaðar.

Hann hafnaði tilboðum frá öðrum úrvalsdeildarfélögum, félögum úr Championship og annars staðar í Evrópu til að ganga í raðir Everton.
Young er 38 ára fyrrum enskur landsliðsmaður sem skrifar undir eins árs samning á Goodison Park og er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Everton í sumar.

Hann mun hitta liðsfélaga sína í Sviss þar sem Everton undirbýr sig fyrir komandi átök í úrvalsdeildinni.

Young er uppalinn hjá Watford og hefur einnig leikið með Aston Villa, Manchester United og Inter á sínum ferli. Hann var kantmaður lengst af á ferlinum en hefur að mestu spilað í bakverði síðustu ár.

Á liðnu tímabili kom hann við sögu í 29 úrvalsdeildarleikjum með Villa sem tryggði sér Evrópusæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.