Bournemouth kaupir Faivre (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
AFC Bournemouth er búið að staðfesta kaup á franska miðjumanninum Romain Faivre sem kostar um 15 milljónir evra og kemur úr röðum Lyon.
Hann kemur þó ekki til Bournemouth í sumar, heldur fer hann út til Lorient á láni út næstu leiktíð.
Lorient fékk Faivre lánaðan frá Lyon síðasta janúar og stóð hann sig frábærlega í frönsku deildinni, en félagið átti ekki efni á honum.
Sem betur fer gat Bournemouth keypt hann og lánað aftur til Lorient, en bandaríski auðmaðurinn Bill Foley er eigandi beggja félaga.
Faivre kom að 8 mörkum í 16 deildarleikjum með Lorient á fyrri hluta árs.
Welcome, Romain ????
— AFC Bournemouth ???? (@afcbournemouth) July 13, 2023
We're delighted to announce the signing of Romain Faivre on a long-term deal from Lyon.
He'll spend the 2023/24 campaign on loan at FC Lorient ????




