Arsenal kynnir Rice (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Arsenal er búið að staðfesta félagsskipti Declan Rice til félagsins frá West Ham United fyrir metfé.
Arsenal borgar 105 milljónir í heildina fyrir Rice sem er dýrasti enski leikmaður sögunnar og langdýrasti leikmaður í sögu Arsenal. Hann kostar talsvert meira heldur en Arsenal greiddi til að kaupa Nicolas Pepe frá Lille sumarið 2019.
Rice er um leið næstdýrasti leikmaður til að hafa nokkurn tímann verið keyptur af ensku úrvalsdeildarfélagi, eftir að Chelsea borgaði 107 milljónir fyrir Enzo Fernandez síðasta janúar.
Rice er uppalinn hjá West Ham þar sem hann var fyrirliði og lék 245 leiki fyrir félagið. Hann endaði dvöl sína hjá West Ham á jákvæðum nótum þegar hann hjálpaði félaginu að vinna sinn fyrsta titil í 43 ár, þegar Hamrarnir lögðu Fiorentina að velli í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í byrjun júní.
Rice er þriðji leikmaðurinn sem Arsenal kaupir í sumar eftir Kai Havertz og jurriën Timber.
Declan Rice. The Arsenal.
— Arsenal (@Arsenal) July 15, 2023




