Galatasaray fær Angelino frá Leipzig (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Tyrkneska stórveldið Galatasaray er búið að tryggja sér spænska sóknarbakvörðinn Angelino frá RB Leipzig.
Angelino kemur á lánssamningi en honum fylgir kaupskylda. Galatasaray greiðir í heildina 7,5 milljónir evra til að kaupa bakvörðinn, sem fær 2,3 milljónir í árslaun hjá félaginu.
Angelino er 26 ára gamall og ólst upp hjá Manchester City en á 100 leiki að baki á tveimur og hálfu ári hjá RB Leipzig.
Hann var lánaður til Hoffenheim á síðustu leiktíð og spilaði 35 leiki er félagið bjargaði sér eftir óvænta fallbaráttu.
Það voru fleiri félög áhugasöm um Angelino en hann var staðráðinn í því að skipta til Galatasaray.
Galatasaray er orðað við ýmsa leikmenn og er í viðræðum við Manchester United um brasilíska miðjumanninn Fred. Þá er Mauro Icardi að ganga til liðs við félagið frá PSG.



