Fotbolti.net
14.07.23 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tadic yfirgefur Ajax (Staðfest)

Tadic yfirgefur Ajax (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ajax hefur staðfest að fyrirliðinn Dusan Tadic sé farinn frá félaginu. Þetta er ári áður en samningurinn hans átti að renna út.

Viðræður hafa gengið yfir um framhald leikmannsins en félagið vildi reyna selja hann. Hann er sagður hafa viljað meiri gæði í leikmannahópinn.

Þessi 34 ára gamli leikmaður gekk til liðs við félagið árið 2018 frá Southampton en hann skoraði 105 mörk og lagði upp 112 í 241 leik fyrir Ajax.

Hann var hluti af liði Ajax sem fór alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar 2019. Tadic er ekki hrifinn af því hversu mikið slakara liðið er í dag en það var þá.

Tadic er serbneskur landsliðsmaður, fyrirliði liðsins, og á að baki 98 landsleiki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.