Leipzig fær Openda fyrir metfé (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
RB Leipzig er búið að staðfesta komu belgíska framherjans Loïs Openda frá RC Lens í Frakklandi.
Leipzig borgar metfé fyrir Openda sem er 23 ára gamall og skoraði 21 mark í 38 leikjum í frönsku deildinni á síðustu leiktíð, auk þess að gefa fjórar stoðsendingar.
Leipzig er talið borga um 43 milljónir evra fyrir Openda, sem gerir hann að sjö milljónum dýrari en Dominik Szoboszlai kostaði fyrir þremur árum. Þar áður voru Naby Keita og Dani Olmo dýrustu kaup félagsins.
Openda er framherji að upplagi en getur leikið á báðum köntum og á 9 landsleiki að baki fyrir Belgíu. Hann gerir fimm ára samning við Leipzig og er fimmti leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar eftir Christoph Baumgartner, Benjamin Sesko, Nicolas Seiwald og Fabio Carvalho.
Grüße von Loïs ?????? pic.twitter.com/zA66srci7m
— RB Leipzig (@RBLeipzig) July 14, 2023



