Fotbolti.net
13.07.23 - 22:32
Ívan Guðjón Baldursson

PSG kynnir Cher Ndour (Staðfest)

PSG kynnir Cher Ndour (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain eru búnir að kynna nýjasta leikmann félagsins, hinn 18 ára gamla Cher Ndour.

Ndour þykir gríðarlega mikið efni en hann er mikilvægur hlekkur í unglingalandsliðum Ítalíu. 

Hann kemur á frjálsri sölu frá Benfica og vinnur PSG kapphlaupið um ungstirnið sem var eftirsóttur af stærstu félögum Evrópu. Juventus, Inter og Manchester City eru meðal félaga sem sýndu honum áhuga.

Ndour gerir fimm ára samning við PSG og er hugsaður fyrir unglingaliðið til að byrja með.

Ndour er gríðarlega kröftugur miðjumaður og var hann í unglingaliði Benfica sem rúllaði upp Evrópukeppni unglingaliða í fyrra með 6-0 sigri gegn RB Salzburg í úrslitaleiknum. 

Unglingalið Benfica komst svo óvænt ekki upp úr riðlinum sínum á nýliðinni leiktíð. Liðið endaði í þriðja sæti riðilsins, eftir unglingaliðum PSG og Juventus.

PSG kynnir Cher Ndour (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.