Fotbolti.net
13.07.23 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sheff Utd kaupir Slimane frá Bröndby (Staðfest)

Sheff Utd kaupir Slimane frá Bröndby (Staðfest)
Canon

Mynd: Sheffield United

Sheffield United, sem vann sér í vetur sæti í ensku úrvalsdeildinni, hefur gengið frá kaupum á Anis Ben Slimane frá danska félaginu Bröndby.

Slimane, sem er 22 ára miðjumaður, skrifar undir þriggja ára samning við enska félagið.
Hann er fæddur í Danmörku, leik með U19 landsliði Dana en ákvað í kjölfarið að spila með Túnis þar sem hann á rætur að rekja.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Sheffield United kaupir í sumar.

Kaupverðið er óuppgefið en er talið rétt rúmlega tvær milljónir punda eða um 20 milljónir danskra króna.

Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið á laugardag þegar liðið leikur æfingaleik gegn Chesterfield. Hann verður í treyju númer 25 í liðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.