Chong til Luton (Staðfest)

Tahith Chong.

Mynd: Getty Images

Tahith Chong.

Mynd: Getty Images
Nýliðar Luton Town hafa fengið til sín vængmanninn Tahith Chong, fyrrum leikmann Manchester United. Luton kaupir Chong frá Birmingham á 4 milljónir punda.
Þessi 23 ára gamli leikmaður yfirgaf United í fyrra fyrir um 1,5 milljón punda eftir vel heppnaða lándsvöl hjá Birmingham tímabilið á undan.
Hann lék 41 leik fyrir þá bláu síðasta tímabil og skoraði fjögur mörk þegar liðið hafnaði í 17. sæti Championship-deildarinnar.

Rob Edwards stjóri Luton segist lengi hafa haft augastað á Chong, sem spilaði fimm aðalliðsleiki fyrir Man Utd á sex árum sínum hjá félaginu. Hann var einnig lánaður til Werde Bremen í Þýskalandi og Club Brugge í Belgíu.
Fyrr í sumar fékk Luton til sín írska vængmanninn Chiedozie Ogbene frá Rotherham og danska varnarmanninn Mads Andersen frá Barnsley.
Luton lék síðast í efstu deild 1991-92 tímabilið en liðið vann umspil Championship-deildarinnar á síðasta tímabili.

Welcome, @TahithC! ????????@premierleague | #COYH pic.twitter.com/xRl7EWyLGN
— Luton Town FC (@LutonTown) July 14, 2023