Jurrien Timber til Arsenal (Staðfest)

Timber er orðinn leikmaður Arsenal og verður í treyju númer 12.

Mynd: Getty Images

Hollenski landsliðsvarnarmaðurinn Jurrien Timber hefur gengið í raðir Arsenal frá Ajax. Þessi 22 ára leikmaður var lykilmaður hjá Ajax þar sem hann lék 121 aðalliðsleik, vann tvo deildarmeistaratitla og hollenska bikarinn.
Timber kom í akademíu Ajax 2014 ásamt Quinten tvíburabróður sínum sem spilar fyrir Feyenoord.

Timber getur bæði spilað sem miðvörður og sem bakvörður. Hann var hluti af hollenska landsliðinu á EM alls staðar og HM í fyrra.
„Við erum afskaplega ánægðir með að fá Jurrien til Arsenal. Hann er leikmaður sem við höfum haft aðdáun á lengi. Hann er ungur hæfilekaríkur landsliðsmaður sem passar vel í okkar hugmyndir," segir íþróttastjórinn Edu.
„Við erum mjög spenntir yfir því að fá Jurrien sem er fjölhæfur varnarmaður sem passar vel í leikkerfið okkar og kemur með aukin gæði í liðið," segir stjórinn Mikel Arteta en Timber tekur treyju númer 12 hjá Arsenal.
Hann er keyptur til Arsenal á 34 milljónir punda en sú upphæð gæti hækkað upp í 38,5 milljónir punda eftir ákveðnum ákvæðum.

The Arsenal family continues to grow ?? pic.twitter.com/VovE3Zt24J
— Arsenal (@Arsenal) July 14, 2023