Gyökeres til Sporting Lissabon fyrir metupphæð (Staðfest)

Viktor Gyökeres.

Mynd: Getty Images

Viktor Gyökeres.

Mynd: Getty Images
Sænski sóknarmaðurinn Viktor Gyökeres er orðinn leikmaður Sporting Lissabon í Portúgal. Coventry City í Championship-deildinni selur hann á metupphæð hjá félaginu.
Coventry tapaði í úrslitaleik umspilsins á síðasta tímabili og mistókst að komast upp.
Gyökeres er 25 ára en Coventry hefur þegar fengið leikmann til að fylla hans skarð, Ellis Simms sem kom frá Everton.
Gyökeres var í fimm tímabil í breskum fótbolta síðan Brighton keypti hann frá Brommapojkarna í Svíþjóð í desember 2017.
Á síðasta tímabili skoraði hann 21 mark og átti 12 stoðsendingar og varð þar með einn verðmætasti leikmaður Championship-deildarinnar. Talað er um að Coventry hafi selt hann á 18,5 milljónir punda. Áður var Robbie Keane stærsta sala félagsins, hann fór til Inter fyrir 13 milljónir punda í ágúst 2000.
Þá er hann dýrasti leikmaður í sögu Sporting Lissabon sem borgaði 13,7 milljónir punda fyrir sóknarmanninn Paulinho sem kom frá Sporting Braga í janúar 2021.

From Viktor, to you ???? pic.twitter.com/P9UAfALRdk
— Coventry City (@Coventry_City) July 13, 2023