Rasmus Kristensen lánaður til Roma (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Rasmus Kristensen er genginn til liðs við Roma á láni frá Leeds út komandi tímabil.
Roma nýtti sér klásúlu í samningi Kristensen sem leyfði honum að yfirgefa enska félagið eftir að það féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Hann er annar leikmaðurinn sem Roma fær frá Leeds en liðið framlengdi lánssamninginn við Diego Llorente sem gekk til liðs við félagið frá Leeds í janúar síðastliðinn.
„Ég er stoltur að vera hluti af þessu frábæra félagi, maður finnur fyrir sögunni um leið og maður labbar hingað inn," sagði Kristensen.
„Árangur Roma í Evrópu undanfarin ár er ástæða þess að mig langaði enn meira að spila fyrir þetta félag. Ég get ekki beðið eftir að byrja."



