Liverpool lánar Van den Berg til Mainz (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Þýska félagið Mainz er búið að tryggja sér varnarmanninn Sepp van den Berg á lánssamningi út tímabilið.
Van den Berg er 21 árs gamall miðvörður sem kemur úr röðum Liverpool, þar sem hann á fjögur ár eftir af samningi.
Hann er hollenskur og er mikilvægur hlekkur í U21 landsliðinu, en á síðustu leiktíð var hann lánaður til Schalke sem féll úr efstu deild í Þýskalandi. Van den Berg fékk aðeins að spila 9 deildarleiki fyrir félagið, en tímabilið þar á undan var hann mikilvægur hlekkur í liði Preston North End í Championship deildinni.
Nú reynir hann fyrir sér hjá Mainz sem endaði um miðja deild á síðustu leiktíð, aðeins fjórum stigum frá Evrópudeildarsæti. Hann vonast til að fá meiri spiltíma þar heldur en hann fékk hjá Schalke.
Welcome to Mainz, Sepp van den Berg! ??????#Mainz05 pic.twitter.com/pGyrFkmYIX
— Mainz 05 English (@Mainz05en) July 13, 2023




