Fotbolti.net
15.07.23 - 11:20
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Renan Lodi til Marseille (Staðfest)

Renan Lodi til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Marseille er búið að krækja í brasilíska bakvörðinn Renan Lodi frá Atletico Madrid.

Franska félagið borgar 13 milljónir evra fyrir og heldur Atletico 20% endursöluákvæði.

Lodi gerir fimm ára samning við Marseille en hann lék á láni hjá Nottingham Forest á síðustu leiktíð.

Forest hafði áhuga á að kaupa hann en leikmaðurinn vildi frekar spila í Meistaradeildinni og kaus því Marseille.

Lodi er 25 ára gamall og með 16 landsleiki að baki fyrir Brasilíu. Hann spilaði 118 leiki á þremur árum hjá Atletico.

Lodi er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Marseille í sumar eftir Geoffrey Kondogbia.

Þá er félagið búið að missa Arkadiusz Milik og Sead Kolasinac úr sínum röðum.


Renan Lodi til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.