Mazilu til Brighton í janúar (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton er búið að staðfesta samkomulag við rúmenska félagið FCV Farul Constanta um kaup á kantmanninum efnilega Adrian Mazilu.
Mazilu á 18 ára afmæli í september og mun hann ekki ganga til liðs við Brighton fyrr en í vetrarglugganum sem hefst eftir áramót.
Brighton borgar um 2,5 milljónir punda fyrir táninginn, en Mazilu er mikilvægur hlekkur í yngri landsiiðum Rúmeníu og þá skoraði hann 7 mörk í 21 leik á síðustu leiktíð með Farul.
Til gamans má geta að þjálfari Mazilu hjá Farul er goðsögnin sjálf, Gheorghe Hagi.
Brighton spilar í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust og er búið að styrkja hópinn sinn með fjórum leikmönnum í sumar eftir sölu á Alexis Mac Allister til Liverpool.
James Milner og Mahmoud Dahoud eru komnir á frjálsri sölu á meðan félagið borgaði tæpar 50 milljónir punda fyrir Joao Pedro og Bart Verbruggen.
We have reached an agreement with FCV Farul Constanta to sign Romanian winger Adrian Mazilu in the January transfer window. ????
— Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) July 14, 2023


Mynd: EPA




