Rodrigo til Al-Rayyan á gjafaprís (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Leeds og Al-Rayyan eru búin að staðfesta félagsskipti Rodrigo sem fer til katarska félagsins á gjafaprífs.
Al-Rayyan borgar aðeins um 3,5 milljónir evra fyrir sóknarmanninn sem er 32 ára og var meðal launahæstu leikmanna Leeds.
Leeds greiddi 30 milljónir evra fyrir hann á sínum tíma en í samningi hans við félagið var sérstakt söluákvæði sem virkjaðist þegar Leeds féll. Þess vegna er hann falur fyrir svona lítinn pening.
Það voru ýmis félög áhugasöm um Rodrigo en hann valdi að fara til Al-Rayyan þar sem hann fær góð laun og lykilhlutverk í liðinu.
Leonardo Jardim er þjálfari félagsins, sem er þegar búið að kaupa Thiago Mendes og Sofiane Boufal á þessu ári. Al-Rayyan endaði í níunda sæti katörsku deildarinnar í fyrra en stefnir á að berjast um titilinn á næsta ári.
Fasten your seatbelts???? ??????#???????_????? #?????? pic.twitter.com/fKBae1qYPu
— AlRayyanSC (@AlrayyanSC) July 13, 2023


Mynd: EPA




