Sigurður Marinó í Magna (Staðfest)
Sigurður Marinó Kristjánsson er genginn í raðir Magna á láni frá Þór út þessa leiktíð.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24452 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Sigurður Marinó Kristjánsson er genginn í raðir Magna á láni frá Þór út þessa leiktíð.
Valérien Ismaël er nýr stjóri Watford í ensku B-deildinni en hann skrifaði undir samning við félagið í dag.
Burnley hefur gengið frá kaupum á Jordan Beyer frá Borussia Mönchengladbach. Beyer hefur leikið með Burnley á láni frá Gladbach í vetur en hefur nú gert fjögurra ára samning við enska félagið.
Ágúst Gylfason hefur verið látinn fara frá Stjörnunni og mun ekki stýra liðinu áfram. Jökull Elísabetarson tekur við liðinu af honum. Ágúst tók við Stjörnunni fyrir síðasta tímabil og var Jökull þá ráðinn aðstoðarþjálfari hans. Stjarnan hefur byrjað þetta tímabil illa og er liðið í ellefta sæti Bestu deildarinnar með þrjú stig.

Vincent Kompany, stjóri Burnley, hefur gert nýjan fimm ára samning við félagið en hann gerði frábæra hluti með liðið í vetur og kom því upp í deild þeirra bestu á Englandi eftir einungis eitt tímabil í Championship deildinni.

Celtic varð í dag skoskur meistari en þetta er annað árið í röð sem liðið vinnur þann stóra undir stjórn Ange Postecoglou.

ÍH hefur leik í 3. deild karla í dag en liðið fær þá Kormák/Hvöt í heimsókn. Flestir spáðu liðinu falli úr 3. deildinni í fyrra en liðið kom mörgum á óvart og náði að halda sér uppi.

Brighton er búið að tilkynna það að félagið hafi gengið frá kaupum á brasilíska framherjanum Joao Pedro frá Watford.
Magnús Snær Dagbjartsson skrifaði á dögunum undir tveggja ára samning í Vogum við Þróttara sem eru að gíra sig í gang fyrir 2. deildina í sumar. Magnús er uppalinn Framari og er þegar búinn að spila fjóra keppnisleiki með Þrótti; einn í Lengjubikarnum og alla þrjá leikina í Mjólkurbikarinn. Það var hins vegar ekki skrifað undir fyrr en um síðustu helgi.

Ari Már Andrésson mun ekki leika með Njarðvíkingum í sumar, heldur verður hann í 5. deildinni með Höfnum.

Stóri Sam Allardyce mætti á æfingasvæði Leeds United í morgun og hefur nú verið staðfestur sem nýr stjóri liðsins. Honum er ætlað að bjarga Leeds frá falli á lokasprettinum. Leeds er markatölunni frá því að vera í fallsæti en liðið á eftir að leika gegn Manchester City, Newcastle, West Ham og Tottenham.

Grindavík hefur samið við varnarmanninn Dominique Bond-Flasza. Dominique er landsliðskona frá Jamaíku sem kemur til liðsins frá finnska félaginu Aland.

Magni hefur fengið til sín spænskan miðjumann að nafni Carlos Felipe Martinez.

Carlos Felipe er 27 ára gamall miðjumaður sem getur leyst ýmsar aðrar stöður á vellinum.

Grindavík hefur nælt í Jasmine Colbert en hún er bandarískur framherji. Hún mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Tvíburasystir hennar, Jada, gekk til liðs við félagið í mars síðastliðnum.

Spænski þjálfarinn Jose Bordalas, sem hefur verið samningslaus síðan í júní, er tekinn við Getafe á nýjan leik í spænska boltanum.

Fjórir leikmenn skrifuðu undir hjá Þrótti V. á dögunum en Mirza Hasesic gekk í raðir félagsins frá Grindavík og þá komu þeir Gunnar Óli Björgvinsson, Valur Þór Hákonarson og Einar Örn Harðarson einnig til félagsins.
Hörður Ísafirði var að fá mikinn liðsstyrk fyrir komandi átök í 5. deildinni þar sem Daníel Agnar Ásgeirsson mun spila með liðinu á láni frá Vestra.
Þorsteinn Aron Antonsson (19) mun spila með Selfossi í sumar. Hann er kominn með leikheimild og kemur á láni frá Fulham út tímabilið. Hann lék átta leiki á láni með Selfossi seinni hluta síðasta sumars. Hann er samningsbundinn Fulham sem keypti hann af Selfossi haustið 2020. Það tímabil var frábært hjá Þorsteini sem var valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar.
Alejandro Garnacho er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Manchester United. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
KA mun spila heimaleiki sína í forkeppni Sambandsdeildarinnar á Framvellinum í Úlfarsárdal. Frá þessu er greint á heimasíðu KA. Þetta er í fyrsta skiptið í 20 ár sem KA er í Evrópukeppni. Greifavöllurinn er heimavöllur KA en stúkan við völlinn uppfyllir ekki kröfur UEFA og því var leitað til Framara um að fá afnot af vellinum.