Fotbolti.net
07.05.23 - 16:20
Aksentije Milisic

Kompany gerir fimm ára samning við Burnley (Staðfest)

Kompany gerir fimm ára samning við Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Vincent Kompany, stjóri Burnley, hefur gert nýjan fimm ára samning við félagið en hann gerði frábæra hluti með liðið í vetur og kom því upp í deild þeirra bestu á Englandi eftir einungis eitt tímabil í Championship deildinni.

Undanfarin misseri hefur Kompany verið orðaður við önnur lið og þá sérstaklega Tottenham Hotspur. Nú er hins vegar ljóst að hann er ekki að fara neitt og var þessi fyrrum leikmaður Manchester City mjög ánægður með nýja samninginn.

„Mér líður eins og þetta sé hárrétt ákvörðun að framlengja samninginn um fimm ár," sagði stjórinn.

„Að koma til Burnley og á Turf Moor var rétt ákvörðun svo mér líður eins og það sé rétt að skrifa undir nýjan samning."

„Saman, með stuðningsmönnum okkar, höfum við gert Turf Moor að vígi á ný og ég hlakka til framtíðarinnar sem mun felast í því að gera Burnley að betra félagi."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.