Celtic er skoskur meistari (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Celtic varð í dag skoskur meistari en þetta er annað árið í röð sem liðið vinnur þann stóra undir stjórn Ange Postecoglou.
Kyogo Furuhashi skoraði sitt þrítugasta mark á tímabilinu þegar Celtic vann 2-0 útisigur á Hearts. Þetta er ellefti titilinn hjá Celtic á síðustu tólf árum, algjörir yfirburðir.
Þá er þetta í 53 skiptið sem Celtic vinnur deildina en liðið getur unnið fimmtu þrennuna á síðustu sjö tímabilum ef liðið nær að vinna B-deildarliðið Inverness Caledonian Thistle í úrslitaleik skoska bikarsins þann 3. júní.
Fjórir leikir eru eftir af deildinni svo Celtic getur núna slakað á og farið að einbeita sér að úrslitaleiknum í bikarnum.
???? CHAMPIONS AGAIN! OLÉ, OLÉ! ????
— Celtic Football Club (@CelticFC) May 7, 2023
???? #CelticFC are crowned Back to Back Champions of Scotland ????????????????????????????????
Congratulations to Ange Postecoglou and the Bhoys! ????? pic.twitter.com/Y77vlVMBH9



